Félagsmiðstöðvadagurinn dró marga að

Skóli og frístund

""

Foreldrar, systkini, frænkur, frændar, ömmur og afar fjölmenntu í félagsmiðstöðvarnar í liðinni viku þegar þar var haldið upp á félagsmiðstöðvadaginn. 

Öllum áhugasömum var boðið að heimsækja félagsmiðstöðvarnar síðdegis og allt fram til kl. 22. Það gilti líka um Tjörnina, sameiginlega frístundamiðstöð Miðborgar, Hlíða og Vesturbæjar. 

Hofið, félagsmiðstöð að Þorragötu, bauð upp á kaffi, kökur og ávexti og krakkarnir sýndu afrakstur úr „trailer-klúbbi“ og myndir úr starfinu. Gleðibankinn, félagsmiðstöð í Hlíðaskóla, bauð fjölskyldum að taka þátt í Hjartslætti og öðrum vinsælum viðburðum.

Félagsmiðstöðin 105, við Háteigsskóla, bauð upp á vöfflur, djús, kaffi og vínber auk þess að spjalla við foreldra um fyrirbærið „tabú“. Frosti, í Hagaskóla, bauð upp á kennslu í Magic the Gathering og unglingar skoruðu á fullorðna í FIFA. Félagsmiðstöðin 100og1, í Spennistöðinni við Austurbæjarskóla, bauð upp á hefðbundna félagsmiðstöðvaopnun þar sem fullorðnir og börn voru hvött til  að kíkja við, sem þau sannarlega gerðu því sjaldan hafa eins margir mætt.

Um 400 gestir komu við í félagsmiðstöðvum Tjarnarinnar og kynntu sér fagstarfið í frístundaþjónustunni og er þeim öllum þakkað fyrir komuna.