Eyja í Ölfusi nefnist sýning ljósmyndarans Valdimars Thorlacius. Titillinn vísar til bæjar á Suðurlandi sem er á virku hverasvæði og við þekkjum undir nafninu Hveragerði. Bærinn er einnig heimabær ljósmyndarans og hefur því sérstaka þýðingu fyrir hann sem viðfangsefni.
Í bænum miðjum vellur heitt vatn upp úr jörðinni, ýmist í fyrirsjáanlegum rólegheitum eða með óvæntum hávaða og látum. Svæðið er áhugavert og einkennist af litskrúðugum bergmyndunum, brennisteinsútfellingum, gufustrókum og dularfullum holum.
Hveragerði varð til og hefur lifað vegna jarðhitans. Nokkrir frumherjar sáu tækifærin og höfðu hugvit og elju til að nýta þau. Í dag hugsa íbúarnir kannski ekki mikið um varmann dags daglega. En hann er hluti af lífinu. Hús þeirra eru byggð við eða ofan á sprungum og hverum. Þau hafa laskast í jarðskjálftum og hverir hafa jafnvel brotist upp í gegnum jarðveginn og komið upp inni í þeim.
Í þessu verki skoðar Valdimar það Hveragerði og manneskjurnar sem er að finna innan um hverina, gufuna og gróðurhúsin.
Valdimar Thorlacius útskrifaðist frá Ljósmyndaskólanum árið 2014.
Sama ár hlaut hann styrk úr Minningarsjóði Magnúsar Ólafssonar og gaf út ljósmyndabók.
Árið 2015 tók hann þátt í samsýningunni Warsaw Festival of Art Photography, Galeria Obok ZPAF í Varsjá, Póllandi ásamt því að vera með einkasýningu Þjóðminjasafn Íslands.