Er geðheilbrigði forréttindi?

Velferð Skóli og frístund

""
Er geðheilbrigði forréttindi? Eða þúsund og einn dagur í lífi hvers barns er yfirskrift fyrsta morgunverðarfundar ársins hjá Náum áttum hópnum.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 27. janúar klukkan 8.15 til 10.00 á Grand Hóteli, Sigtúni 38.



Frummælendur eru;



Anna María Jónsdóttir, geðlæknir, sem spyr hvernig er hægt er að auka jöfnuð barna þegar kemur að geðheilsu og velferð?



Fögnum breytingum og styðjum hvert annað heitir erindi Ólafs Grétars Gunnarssonar, fjölskylduráðgjafa.



Að lokum fjallar dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, um foreldraheilbrigði, mennsku og menningu samfélags.



Fundarstjóri er Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi hjá Barnaverndarstofu. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2.400 krónur og innifalið í því er morgunverður.



Dagskrá fundarins