Endurskoðaðar reglur um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi

""
Endurskoðaðar reglur um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar taka gildi 15. apríl 2016 og falla þá úr gildi fyrri reglur þessa efnis frá því í september 2013.
 
 
Við endurskoðun á reglunum var meðal annars horft til reynslu af eldri reglum, niðurstaðna könnunar á viðhorfum stjórnenda í skóla- og frístundastarfi og foreldra til reglnanna, þróunar á þátttöku barna og unglinga í skipulegu íþrótta- og tómstundastarfi og ítarefnis og upplýsingar um börn og markaðsmál á vef Umboðsmanns barna. Haft var víðtækt samráð um endurskoðun reglnanna og sátu fulltrúar hagsmunaaðila í starfshópi sem vann að endurskoðuninni.
 
Meginmarkmið reglnanna er að vernda börn gegn auglýsingum og markaðssókn í skóla- og frístundastarfi, þó án þess að takmarka aðgang að upplýsingum um íþrótta- og tómstundastarfi og án þess að banna að börn fái afhenta hluti samkvæmt ákvörðun stjórnanda og notaðir eru við fræðslu og forvarnir í starfseminni.
 
Með reglunum er leitast við að greiða fyrir kynningum á æskulýðs-, íþrótta- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga. Þar er kveðið á um leiðir til að kynna fyrir börnum og foreldrum, fjölbreytta möguleika á æskulýðs- íþrótta- og tómstundastarfi.  Annars vegar er fjallað um kynningar sem beinast beint að börnum og unglingum inni í skipulögðu skóla- og frístundastarfi, t.d. á íþróttagreinum í íþróttatímum, á hljóðfæranámi í tónmennt, á skátastarfi í útivistarfræðslu o.s.frv. Hins vegar snýr greinin að stærri skipulögðum kynningum sem haldnar eru á starfstíma starfsstaða í samstarfi skólasamfélagsins og grenndarsamfélagsins. 
 
Mikilvægt er að skólaráð hvers skóla, í samstarfi við frístundamiðstöð síns hverfis, foreldrafélag og hagsmunaðila í hverfinu, t.d. hverfisráð, hverfisíþróttafélög og félagasamtök eigi samráð um fyrirkomulag á kynningum á úrvali af æskulýðs-, íþrótta- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga í viðkomandi hverfi. Í reglunum er sérstök athygli vakin á vefnum fristund.is sem hefur að geyma viðamiklar upplýsingar um æskulýðs-, íþrótta- og tómstundastarfsemi sem stendur börnum og unglingum til boða.
 
Reglur um gjafir er orðnar skýrari en í fyrri reglum með því að aðgreina reglu um gjafir til starfsstaða annars vegar og gjafir til barna til einkaeignar hins vegar. Starfsstaðir geta þegið gjafir frá utanaðkomandi aðilum, t.d. fyrirtækjum, félagasamtökum og stofnunum ef stjórnandi telur þær hafa fræðslu- og forvarnagildi og samræmast stefnu skóla- og frístundasviðs og með því skilyrði að börn, starfsstaðir eða gjöfin sjálf sé ekki merkt kostunaraðila. Sem dæmi má nefna tölvur, leikföng, spil og öryggisvesti til notkunar í vettvangsferðum, tannbursta, sólmyrkvagleraugu o.s.frv., til notkunar við fræðslu og forvarnir í starfseminni. Framangreint er háð því að hlutirnir uppfylli staðla um öryggi þeirra. Starfsstaðir geta greint frá gjöfum af þessu tagi á vefsíðu sinni, í fréttabréfi og/eða með tölvupósti til foreldra.
 
Óheimilt er að dreifa gjöfum, sem ætlaðar eru börnum til einkaeignar, í skipulögðu skóla- og frístundastarfi. Hafi stjórnandi heimilað afhendingu hluta sem nota á við fræðslu og forvarnir í starfseminni sbr. 4. gr. er heimilt að börn fái þá til eignar. Stjórnanda er heimilt í samráði við foreldraráð leikskóla eða skólaráð grunnskóla og foreldrafélag að veita utanaðkomandi aðilum leyfi til að nýta húsnæði starfsstaðar eftir að formlegu starfi lýkur til að dreifa gjöfum sem ætlaðar eru börnum til einkaeignar í fræðslu og forvarnaskyni. Beina skal tilkynningum um það til foreldra.