Endurskapa Breiðholt og leita tækifæra

Stjórnsýsla Velferð

""
Nemendur í öllum grunnskólum í Breiðholti hafa í vetur byggt líkön af öllum borgarhlutanum og þau verða í veigamiklu hlutverki á samráðsfundum með íbúum fyrir nýtt hverfisskipulag.
Sú hugmynd að nýta líkön til að auðvelda samtal um framtíðarsýn hverfisins byggir á erlendri fyrirmynd sem kölluð hefur verið Skapandi samráð (Planning for Real). Markmið samráðsins er að nýta reynslu íbúa af nærumhverfi þeirra og er aðferðin hönnuð þannig að allar raddir fái áheyrn. Með hjálp einfaldra líkana af hverfum borgarinnar er rætt um kosti og galla og þannig skapaður grundvöllur að nýrri framtíðarsýn þar sem meðal annars er horft til eftirfarandi þátta:
  • Hvaða þjónustu vantar?
  • Hvar eru tækifæri í þínu hverfi?
  • Hvaða breytingar viltu sjá á þínu nánasta umhverfi og jafnvel eigin húsnæði?
 
Það eru nemendur í 6. bekkjum í öllum skólunum í Breiðholti sem eiga heiður að líkanasmíðinni og nutu þau leiðsagnar kennara og starfsfólks umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. 
 
Haldnir verða þrír samráðsfundir í Breiðholti: 
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur undanfarið unnið með ráðgjöfum að gerð hverfisskipulags fyrir Breiðholtið og verður afrakstur þeirrar vinnu kynntur á fundumum, jafnframt því sem leitað verður eftir hugmyndum íbúa og viðbrögðum þeirra.
 

Nánari Upplýsingar um hverfisskipulag má sjá á vef verkefnisins www.hverfisskipulag.is.