Laugardaginn 30.janúar munu skraut- og bréfdúfueigendur mæta með dúfur sínar til sýningar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá kl. 12 til 16.
Sýningunni er ætlað að vekja athygli á fjáröflun Skrautdúfnafélags Hafnarfjarðar og Bréfdúfnafélags Íslands en skrautdúfueigendur urðu fyrir töluverðu tjóni í bruna í Straumsvík á dögunum. Dúfnamenn verða á staðnum til að veita upplýsingar þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu skemmtilega sporti sem dúfnarækt er.
Hægt er að styðja við starfsemi félagsins með því að leggja inn á reikning 0152-05-570261 og kt: 1406524929