Í dag eru nemendur með gjörninga í mörgum skólum í tilefni þess að dagurinn er helgaður baráttunni gegn einelti.
Í Austurbæjarskóla er öll vikan helguð vináttu og góðum samskiptum. Þar er grænn dagur til heiðurs græna kallinum í eineltishringnum, sem er verndari þolenda vondra samskipta. Allir nemendur taka þátt í því að púsla saman veggmynd þar sem hver og einn á sinn hlut og allir eiga saman heildarmyndina. Í nokkrum skólum eru opin hús í tilefni dagsins og einnig hafa nemendur víða gert myndbönd og annað efni sem styðjast má við í umræðum um einelti. Það gildir m.a. um stúlkur í Háaleitisskóla sem tóku þátt í Stelpur filma-verkefninu og notuðu þá tækifærið og gerðu myndbandið Rödd Tinnu
Skóla- og frístundasvið stendur á degi gegn einelti fyrir kynningarfundi um þróunarverkefnið ALLIR VINIR. Vanda Sigurgeirsdóttir lektor við Menntavísindasvið HÍ kynnir þróunarverkefnið sem unnið er að í leikskólanum Hofi, frístundaheimilinu Laugarseli og Laugarnesskóla í samstarfi við starfshóp um vinsamlegt samfélag. Markmið verkefnisins ALLIR VINIR er að innleiða og samræma aðferðir og úrræði til að efla vinsamleg samskipti án ofbeldis meðal barna í leikskólum, yngstu bekkjum grunnskóla og á frístundaheimilum.
Auk Vöndu deila fulltrúar frá leikskólanum, grunnskólanum og frístundaheimilinu reynslu sinni.
Skrifaðu undir þjóðarsáttmála gegn einelti.