Það verður nóg um að vera á Borgarsögusafni Reykjavíkur meðan á vetrarfríi í grunnskólum borgarinnar stendur yfir. Litað og ritað, útiratleikur, sjóræningjakort og myndaþraut. Kynntu þér dagskrána og notaðu fríið þér og þínum til skemmtunar.
Dagskrá Borgarsögusafns Reykjavíkur
Frítt inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum á fimmtudag og föstudag.+
Árbæjarsafn
Kistuhyl, 110 Reykjavík
Opið 13:00 til 16:00, fimmtudag og föstudag. *
Lokað um helgina.
Komdu, skoðaðu og leiktu þér! Sýningarnar Komdu að leika og Neyzlan verða opnar báða dagana! Þar að auki verður hægt að fara í skemmtilegan útiratleik um safnsvæðið.
Landnámssýningin
Aðalstræti 16, 101 Reykjavík
Opið 09:00 til 20:00 báða dagana*
Rúnaratleikur – reyndu að leysa ráðgátuna með því að rýna í fornar rúnir. Skemmtilegur og fræðandi ratleikur.
Litað og ritað – Fjölskyldur geta sest niður, litað og teiknað, ritað rúnir og ýmislegt fleira.
Litað og ritað – Fjölskyldur geta sest niður, litað og teiknað, ritað rúnir og ýmislegt fleira.
Sjóminjasafnið í Reykjavík
Grandagarði 8, 101 Reykjavík
Opið 10:00 til 17:00 báða dagana*
Grandagarði 8, 101 Reykjavík
Opið 10:00 til 17:00 báða dagana*
Teiknismiðja – tilvalið fyrir fjölskylduna að setjast niður eftir að hafa skoðað safnið, og láta sköpunargáfuna taka völdin.
Sjóræningjakort – Hægt er að nálgast kort sem leiðir gesti í gegnum safnið í leit að ýmsum safnagersemum.
Sjóræningjakort – Hægt er að nálgast kort sem leiðir gesti í gegnum safnið í leit að ýmsum safnagersemum.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Tryggvagötu 16, 6.hæð, 101 Reykjavík
Opið fimmtudag 12:00-19:00 og föstudag 12:00-18:00
Alltaf frítt inn!
Tryggvagötu 16, 6.hæð, 101 Reykjavík
Opið fimmtudag 12:00-19:00 og föstudag 12:00-18:00
Alltaf frítt inn!
Myndaþraut – Áhugaverð þraut í tengslum við sýningu Friðgeirs Helgasonar á safninu, þar sem smáatriði ljósmynda eru í fókus.
13:00 – 15:00 fimmtudag og föstudag – Þeir sem leysa myndaþrautina geta fengið Polaroid mynd af sér! Grímur verða til staðar fyrir þá sem vilja ná hinum sanna myndavélasvip!
13:00 – 15:00 fimmtudag og föstudag – Þeir sem leysa myndaþrautina geta fengið Polaroid mynd af sér! Grímur verða til staðar fyrir þá sem vilja ná hinum sanna myndavélasvip!
*Einungis er frítt inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum fimmtudaginn 25. og föstudaginn 26.febrúar.
Um helgina gilda venjulegir opnunartímar og því lokað á Árbæjarsafni um helgina.
Um helgina gilda venjulegir opnunartímar og því lokað á Árbæjarsafni um helgina.