Býr í þér fréttamaður/kona eða einhverjum sem þú þekkir?

Skóli og frístund Menning og listir

""
Reykjavíkurborg og KrakkaRÚV bjóða tíu ungmennum úr 8. – 10. bekk að gerast fréttamenn á Barnamenningarhátíð í Reykjavík 19. – 24. apríl. Munu fréttamennirnir gera lifandi fréttir af viðburðum hátíðarinnar sem fluttar verða á KrakkaRUV, vefnum www.ruv.is og á öðrum miðlum RUV.
 
RÚV mun bjóða þeim sem valdir verða til starfsins upp á námskeið þar sem farið er yfir fréttaskrif, framsögn, viðtalstækni, internetið og tækni. Reynsluboltar í fréttamennsku miðla af reynslu sinni til ungu fréttamannanna. Námskeiðið er haldið 12. apríl frá 15:00 – 18:00 og og 14. apríl kl. 15.00 – 18.00.
 
Nánari upplýsingar um verkefnið.