Börn með annað móðurmál en íslensku fái frítt inn á frístundaheimili
Skóli og frístund Mannlíf
Meirihluti skóla- og frístundaráðs samþykkti í dag að börn með annað móðurmál en íslensku og eru að hefja skólagöngu í grunnskólum borgarinnar skuli tímabundið njóta undanþágu frá greiðslu fyrir dvöl á frístundaheimili.
Samþykkt ráðsins nær til 6-9 ára barna í 1.- 4. bekk og byggir á skýrslu starfshóps um móðurmálskennslu barna með annað móðurmál en íslensku. Hópurinn lagði til að efla bæri frístundastarf barna sem væru að hefja skólagöngu hér á landi og hefðu ekki full tök á íslensku. Þannig gæfist tækifæri til að vinna með félagslega tungumálið og efla þátttöku tví- og margtyngdra barna í íslenskri barnamenningu.
Stefnt er að því að þau börn sem eru að hefja skólagöngu á Íslandi í fyrsta sinn fái boð um þátttöku í frístundastarfi fyrstu þrjá mánuðina eftir að skólaganga þeirra hefst, foreldrum að kostnaðarlausu. Um 2.500.000 kr. verður varið til þessa verkefnis á þessu skólaári.
Um 30 börn sem skráð eru í 1. - 4. bekk grunnskólanna nú falla undir skilgreiningu um gjaldfrjálst frístundaheimili fyrstu þrjá mánuðina, en miðað er við að þau hafi flutt til landsins á árinu 2016, hafi búið erlendis í fimm ár eða lengur eða eru með annað móðurmál en íslensku.
Um er að ræða tilraunaverkefni til rúmlega 7 mánaða sem tekur gildi 1. nóvember og mun standa til loka skólaársins. Að því loknu verður verkefnið metið með tilliti til þess hvort börnin hafi haldið áfram í frístundastarfinu að þremur gjaldfrjálsu mánuðum liðnum og hvort dvöl þeirra á frístundaheimili hafi haft góð áhrif á færni þeirra í íslensku og á félagslega stöðu þeirra.
Samþykkt skóla- og frístundaráðs verður vísað til borgarráðs til staðfestingar.