Börn hjálpa börnum til betra lífs

Skóli og frístund Mannlíf

""

 Í dag verður haldinn jólamarkaður í frístundamiðstöðinni Tjörninni til styrktar Unicef

Frístundamiðstöðin Tjörnin verður eflaust  vinsæll áfangastaður hjá fjölskyldum í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum kl. 16.00 síðdegis í dag þegar börnin í frístundaheimilum halda jólamarkað til styrktar Unicef.

Börnin hafa undanfarna daga lagt hart að sér við að búa til ýmsan jólavarning sem verður til sölu á jólamarkaði fjölskyldunnar, en einnig verður opnað kaffihús í Tjörninni þar sem íbúar hverfisins geta sest niður og jólað sig í gang í góðum félagsskap vina og vandamanna.

Allir ágóði mun renna óskiptur til Unicef, en börnin munu sjálf fá að ráðstafa hverri krónu í sannar gjafir Unicef og leggja þannig sitt af mörkum við að bæta lífskjör barna sem búa ekki við jafn góðar aðstæður og þau sjálf. 

Allir velkomnir í Tjörnina sem er til húsa í Frostaskjóli 2.