Borgarstjórn minnist Jóns G. Tómassonar fyrrverandi borgarritara

Stjórnsýsla Mannlíf

""
Jón Gunn­ar Tóm­as­son, fyrr­ver­andi borg­ar­rit­ari og rík­is­lögmaður, lést 23. apríl sl. á hjarta­deild Land­spít­al­ans. Hann var fædd­ur 7. des­em­ber 1931, son­ur hjón­anna Tóm­as­ar Jóns­son­ar borg­ar­rit­ara og Sig­ríðar Thorodd­sen hús­freyju. Jón Gunnar Tómasson starfaði í 28 ár hjá Reykjavíkurborg. 
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri minntist Jóns Gunnars Tómassonar fyrrverandi borgarritara í upphafi borgarstjórnarfundar í dag.
Jón gegndi ýmsum embættum á 28 ára ferli sínum hjá Reykjavíkurborg.
 
Árið 1966 tók Jón við starfi skrif­stofu­stjóra borg­ar­stjórn­ar Reykja­vík­ur, sem hann gegndi til 1979 þegar hann tók við embætti borg­ar­lög­manns. Frá 1982 gegndi Jón störf­um borg­ar­rit­ara uns hann var skipaður í embætti ríkis­lög­manns 1994, sem hann sinnti þar til hann lét af störf­um fyr­ir ald­urs sakir.
 
Útför Jóns fór fram frá Neskirkju í dag.
 
Reykjavíkurborg sendir fjölskyldu og aðstandendum Jóns hugheilar samúðarkveðjur.