Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur sent kveðju til Yvan Mayeur borgarstjóra í Brussel. Þar vottar hann honum samúð vegna voðaverkanna sem áttu sér stað á flugvelli og á lestarstöð borgarinnar.
Yfirlýsingin fer hér á eftir:
Borgarstjóri Yvan Mayeur.
Ég votta yður samúð, fyrir hönd allra íbúa Reykjavíkur, vegna voðaverkanna í Brussel í morgun. Erfitt er að ímynda sér meiri óhugnað – en skipulagðar árásir sem beinast gegn saklausu fólki. Hugur okkar allra er hjá íbúum Brussel, fórnarlömbum árásarinnar, ættingjum þeirra og vinum.
Dagur B. Eggertsson Borgarstjóri Reykjavíkur
Á frönsku:
À Monsieur Yvan Mayeur, le Maire de Bruxelles
Je vous témoigne au nom de tous les résidents de Reykjavik, notre plus profonde sympathie et soutien pour la tragédie de Bruxelles ce matin. Il est difficile d'imaginer plus grand mal que ces attaques organisées visant des personnes innocentes. Nos pensées sont avec tous les habitants de Bruxelles, les victimes d'agression, leurs familles, leurs amis et tous vos concitoyens.
Dagur B Eggertsson, Maire de Reykjavík.