Borgarstjóri í Háaleiti og Bústöðum

Skóli og frístund

""
Borgarstjóri verður þessa viku að störfum í Háaleiti og Bústöðum og hefur hann flutt skrifstofu sína í þjónustumiðstöðina í Efstaleiti. 
Í morgun heimsótti borgarstjóri tvo skóla; Réttarholtsskóla og Fossvogsskóla þar sem hann heilsaði upp á nemendur og starfsfólk. Nemendur í Fossvogsskóla tóku vel á móti borgarstjóra og leiddu hann inn á bókasafn þar sem hann las fyrir þau upp úr þjóðsögunum. 


Þetta er í fimmta sinn sem borgarstjóri flytur starfsstöðvar sínar út í hverfin. Á miðvikudag 27. janúar kl. 20.00 verður opinn hverfafundur með íbúum í Háaleiti og Bústöðum þar sem farið verður yfir flest það sem viðkemur hverfaskipulagi, þjónustu og fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfinu.