Borgarstjóri flytur skrifstofuna í Grafarvog

Stjórnsýsla Mannlíf

""
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun flytja skrifstofu sína í félagsheimilið Borgir í Spönginni 43. Hann mun heimsækja skóla, stofnanir, íþróttafélög og fyrirtæki í hverfinu.  


 
 
Þetta er í sjötta sinn sem borgarstjóri færir sig um set innan borgarinnar en hann var í Árbæjarhverfi í mars, í Breiðholti í apríl, í Hlíðum og Norðurmýri í september,  í Laugardal í Nóvember á síðasta ári. Í janúar á þessu ári var hann í Háaleiti-Bústöðum.
 
Haldinn verður opinn hverfafundur með íbúum í hverfinu í Rimaskóla þriðjudaginn 19. apríl nk. Til umræðu á fundinum verður allt sem tengist hverfinu, framkvæmdir, þjónusta og hverfisskipulag verður kynnt.  Hverfisskipulaginu er ætlað að auðvelda skipulag, áætlanagerð og hvetja fólk til að hafa aukin áhrif á hverfið sitt.