Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kom víða við í Grafarvogi í dag. Hann tók þátt í tiltekt fyrir utan félagsmiðstöðina Borgir í morgun, heimsótti Þjónustumiðstöðina Miðberg í Grafarvogi og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Íbúar í Grafarvogi sem koma í félagsmiðstöðina Borgir tóku þátt í tiltektardegi sem hófst klukkan 9.30 í morgun. Um 20 manns tóku þátt og var góð stemning, sópar, skóflur og fleiri verkfæri voru til reiðu og sól á lofti. Borgarstjóri sópaði gangstéttina ásamt fleirum og spjallaði um hverfið. Að því loknu var farið á fund með leikskólastjórum hverfisins í þjónustumiðstöðinni í Grafarvogi þar sem rætt var um leikskólamálin í hverfinu. Farið var í stutta skoðunarferð um þjónustumiðstöðina sjálfa og heilsað upp á starfsfólk.
Því næst var förinni heitið í Nýsköpunarmiðstöð Íslands þar sem farið var í skoðunarferð um miðstöðina og skoðuð hin ýmsu verkefni sem þar eru í gangi.
Í Nýsköpunarmiðstöðinni skoðaði borgarstjóri öfluga rafeindasmásjá með efnagreiningarbúnaði og sýnagerðarbúnað tengdan henni sem stofnunin hefur yfir að ráða.
Forsvarsmenn fyrirtækisins GENIS hf. kynntu fyrir borgarstjóra rannsóknir sínar og framleiðslu sem byggir á sérhæfðri þekkingu tengdri framleiðslu á lyfjum, fæðubótarefnum og lækningartækjum úr rækjuskel. Vísindamenn fyrirtækisins hafa á annan áratug unnið að þróun þessara vara. Markmið GENIS er að nýta þessa uppsöfnuðu þekkingu til þess að bæta lífsgæði fólks sem þjakað er af bólgutengdum heilsukvillum.
Borgarstjóri hitti liðsmenn tölvuleikjafyrirtækisins Lumenox en fyrirtækið gaf út tölvuleik í fullri stærð sem er listaverki líkastur. Leikurinn heitir Aaru's Awakening og er svokallaður 2D platformer. Þeir eru nú með annan leik í smíðum og voru önnum kafnir þegar borgarstjóri leit við.
Þá hitti hann starfsmenn Malbikunarsetursins en mikil rannsókna- og þróunarvinna á sér stað innan Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands við endurhönnun malbiks til notkunar við íslenskar aðstæður. Setrið hefur yfir að ráða tækjabúnaði til prófana og framleiðslu á malbiki. Tækin sem um ræðir eru malbiksþjappa til að útbúa sýni, hjólfaratæki til að mæla skrið í malbiki í sumarhitum og slitþolstæki sem mælir þol malbiks gagnvart nagladekkjasliti að vetri til.