Borgarleikhúsið fær mettilnefningar til Grímunnar

""
Tilnefningar til íslensku leiklistarverðlauna Grímunnar 2016 voru opinberaðar við formlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í gær.  Sýningar í Borgarleikhúsinu hljóta samtals 41 tilnefningu til Grímuverðlauna 2016. 
Sýningin Njála sópar að sér tilnefningum og fær 11 tilnefningar m.a sem sýning ársins, leikstjóri ársins, leikkona í aðalhlutverki, leikari í aukahlutverki, leikmynd, búningar og fl. Vegna mikillar eftirspurnar munu aukasýningar á Njálu verða í september en aðeins í skamman tíma og er miðasalan nú þegar hafin.  Mávurinn hlaut 7 tilnefningar, MAMMA MIA! 6 og Illska sem er samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar hlaut 6 tilnefningar.
 
Gríman er uppskeruhátíð sviðslistafólks og það er Leiklistarsamband Ísland heildarsamtök sviðslistanna á Íslandi, sem hafa veg og vanda að Grímuverðlaununum (sjá nánar á http://stage.is/). Grímuhátíðin verður haldin í fjórtánda sinn í ár, nú í Þjóðleikhúsinu mánudaginn 13. júní n.k. og verður athöfninni sjónvarpað beint á RÚV.


Tilnefningar Borgarleikhússins til Grímuverðlauna eru listaðar hér fyrir neðan;
 
NJÁLA – 11 tilnefningar

•       Sýning ársins 2016

•       Leikrit ársins 2016

•       Leikstjóri ársins 2016 – Þorleifur Örn

•       Leikari ársins 2016 í aukahlutverki – Hjörtur Jóhann

•       Leikkona ársins 2016 í aðalhlutverki – Brynhildur Guðjóns

•       Leikmynd ársins 2016 – Ilmur Stefánsd

•       Búningar ársins 2016 – Sunneva Ása Weishappel

•       Lýsing ársins 2016 – Björn Bergsteinn

•       Tónlist ársins 2016 – Árni Heiðar og Valdimar Jóhannsson

•       Hljóðmynd ársins 2016 – Baldvin Þór og Valdimar Jóhannsson

•       Dans – og sviðshreyfingar ársins 2016 – Erna Ómars
 
MÁVURINN – 7 tilnefningar

•       Sýning ársins 2016

•       Leikstjóri ársins 2016 – Yana Ross

•       Leikari ársins 2016 í aukahlutverki – Hilmir Snær

•       Leikkona ársins 2016 í aðalhlutverki – Halldóra Geirharðs

•       Leikmynd ársins 2016 – Zane Philström

•       Búningar ársins 2016 – Filippía I. Elísdóttir

•       Lýsing ársins 2016 – Björn Bergsteinn
 
MAMMA MIA! – 6 tilnefningar

•       Leikstjóri ársins 2016 – Unnur Ösp

•       Búningar ársins 2016 – Filippía I. Elísdóttir

•       Lýsing ársins 2016 – Þórður Orri

•       Söngvari ársins 2016 – Jóhanna Vigdís

•       Söngvari ársins 2016 – Þórunn Arna

•       Dans – og sviðshreyfingar ársins 2016 – Lee Proud
 
ILLSKA – 6 tilnefningar

•       Sýning ársins 2016

•       Leikrit ársins 2016

•       Leikstjóri ársins 2016 – Vignir Rafn

•       Leikari ársins 2016 í aðalhlutverki – Sveinn Ólafur

•       Leikari ársins 2016 í aukahlutverki – Hannes Óli

•       Dans – og sviðshreyfingar ársins 2016 – Brogan
 
HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINIU WOOLF? - 4 tilnefningar

•       Leikari ársins 2016 í aðalhlutverki – Hilmir Snær

•       Leikkona ársins 2016 í aðalhlutverki – Margrét Vilhjálmsdóttir

•       Leikkona ársins 2016 í aukahlutverki – Elma Stefanía

•       Leikmynd ársins 2016 – Gretar Reynisson
 
FLÓР – 3 tilnefningar

•       Sýning ársins 2016

•       Leikrit ársins 2016

•       Sproti ársins 2016 – Hrafnhildur og Björn
 
AUGLÝSING ÁRSINS – 3 tilnefningar

•       Leikrit ársins 2016

•       Leikkona ársins 2016 í aukahlutverki – Kristín Þóra

•       Búningar ársins 2016 – Eva Signý Berger
 
KK – 1 tilnefning

•       Tónlist ársins 2016

 

Við óskum Borgarleikhúsinu til hamingju með tilnefningarnar.