Borgarfulltrúi fór ekki á svig við lög

Stjórnsýsla Fjármál

""
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir fór ekki á svig við gildandi lög og reglur um skyldur og hæfi borgarfulltrúa  að mati  innri endurskoðanda og regluvarðar, en ekki var hins vegar farið að reglum um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa.
 
Í framhaldi af samþykktri tillögu á aukafundi forsætisnefndar borgarstjórnar hinn 5. apríl sl. var innri endurskoðanda og regluverði falið að skoða hvort borgarfulltrúar hafi farið á svig við gildandi lög og reglur um skyldur og hæfi borgarfulltrúa.
 
Við skoðun innri endurskoðanda og regluvarðar á því hvort borgarfulltrúinn Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir hafi farið á svig við gildandi lög og reglur um skyldur og hæfi borgarfulltrúa og hvort reglum um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa og trúnaðarstörfum utan borgarstjórnar hafi verið fylgt hefur verið sýnt fram á að ekki hefur verið farið á svig við stjórnsýslulög eða lög um verðbréfaviðskipti og leiðbeiningar Fjármálaeftirlitsins þar um. Hins vegar var ekki farið að ákvæðum reglna um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa og trúnaðarstörfum utan borgarstjórnar.
 
Hafa þarf hugfast að það eitt og sér að stofna fyrirtæki eða eiga hlut í félögum gerir borgarfulltrúa ekki vanhæfa í skilningi hæfisreglna stjórnsýsluréttarins. Til þess þarf að koma sérstakt vanhæfi og fer þá um afgreiðslu máls eftir 20. gr. sveitarstjórnarlaga, þ.e. að borgarfulltrúi má ekki taka þátt í meðferð þess eða hafa áhrif á það með öðrum hætti og skal ávallt yfirgefa fundarsal við meðferð þess og afgreiðslu. Ekkert kom fram við skoðunina sem leiddi í ljós að Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir hafi farið á svig við reglur um skyldur og hæfi borgarfulltrúa.
 
Við greiningu á hvort farið hafi verið á svig við 126. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 eða reglur fjármálaeftirlitsins nr. 1050/2012 um meðferð innherjaupplýsinga og viðskipti innherja er það niðurstaða skoðunar að borgarfulltrúinn hafi ekki farið á svig við þau lög og reglur. 
 
Við greiningu á hlutafélagaþátttöku ársreikningum og upplýsingum úr Panamaskjölunum svokölluðu er það niðurstaðan að Sveinbjörgu Birnu hafi ekki borið að skrá upplýsingar um 7CALLINVEST INC. og ICE 1 CORP INC. í skrá um fjárhagslega hagsmuni enda voru bæði þessi félög afskráð hjá fyrirtækjaskrá beggja landa áður en hún var kjörin í borgarstjórn hinn 31. maí 2014. Hins vegar hafi henni borið að skrá upplýsingar um félögin Lögmenn Hamraborg 12 ehf., ImmoIce ehf. og P10 ehf. sem hún gerði ekki og því brotið gegn reglum borgarstjórnar um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa og trúnaðarstörfum utan borgarstjórnar.