Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar - frestur rennur út 1. júní

Mannlíf Menning og listir

""
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar eru veitt ár hvert í minningu Tómasar Guðmundssonar fyrir óprentað handrit að ljóðabók. Frestur til að skila inn handritum rennur út 1. júní næstkomandi. Dómnefnd verðlaunanna er skipuð þremur einstaklingum. 
Hvernig tekur fólk þátt?


Auglýst hefur verið eftir óprentuðu handriti að ljóðabók, frumsömdu á íslensku. Skilafrestur rennur út 1. júní 2016.

Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendingu niður það ár. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila merktum dulnefni, en nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi.

Handrit berist í síðasta lagi 1. júní 2016.
 
Utanáskrift:
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
b.t. Signýjar Pálsdóttur, skrifstofustjóra menningarmála,
Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar,
Vesturgötu 1, 2. hæð,
101 Reykjavík.
 
Hver skipar dómnefnd?


Dómnefnd verðlaunanna er skipuð af borgarráði og er hún skipuð þremur einstaklingum. Þar af einum samkvæmt tilnefningu menningar- og ferðamálaráðs og einum sem tilnefndur er af Rithöfundasambandi Íslands. Dómnefnd skal skipuð í maí fyrir verðlaun komandi árs og ljúka störfum fyrir 15. ágúst árið eftir.
 

Dómnefnd árið 2016 skipa Úlfhildur Dagsdóttir formaður og Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir, tilnefnd af menningar- og ferðamálaráði, og Bjarni Bjarnason, tilnefndur af Rithöfundasambandi Íslands.

 
Hver eru verðlaunin?


Verðlaunahafi hlýtur verðlaunafé. Verðlaunaféð er greitt af Reykjavíkurborg og eru ein verðlaun veitt árlega í vetrarbyrjun. Árið 2016 verður upphæð verðlaunanna 700 þúsund krónur.
 
Verðlaunahafar frá upphafi


2015: Ragnar Helgi Ólafsson - Til hughreystingar þeim sem finna sig ekki í samtíma sínum

2014: Hjörtur Marteinsson - Alzheimer-tilbrigðin

2013: Bjarki Karlsson – Árleysi alda

2012: Dagur Hjartarson – Þar sem vindarnir hvílast - og fleiri einlæg ljóð

2011: Sindri Freysson – Í klóm dalalæðunnar

2010: Þórdís Gísladóttir – Leyndarmál annarra

2009: Eyþór Árnason – Hundgá úr annarri sveit

2008: Magnús Sigurðsson – Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu

2007: Ari Jóhannesson – Öskudagar

2006: Ingunn Snædal – Guðlausir menn - Hugleiðingar um jökulvatn og ást

2004: Auður Ólafsdóttir – Rigning í nóvember

2002: Sigurbjörg Þrastardóttir – Sólar Saga

2000: Hjörtur Björgvin Marteinsson – AM 00

1998: Bjarni Bjarnason – Borgin bak við orðin

1997: Elín Ebba Gunnarsdóttir – Sumar sögur

1994: Helgi Ingólfsson – Letrað í vindinn.