Blái hnötturinn í Leikhúskaffi

Menning og listir

""
Fyrsta Leikhúskaffi vetrarins verður fimmtudaginn 8. september, á sjálfan bókasafnsdaginn. Dagskráin hefst kl. 17:30 í Borgarbókasafninu Kringlunni, en þar mun leikstjóri Bláa hnattarins, Bergur Þór Ingólfsson, segja gestum frá uppsetningu Borgarleikhússins á leikritinu.
Eftir kynninguna verður rölt yfir í Borgarleikhúsið þar sem gestir Leikhúskaffis fá stutta kynningu á leikmynd og annarri umgjörð sýningarinnar. Í lok Leikhúskaffis býðst gestum 10% afslátt af miðum á Bláa hnöttinn
 
Um Leikhúskaffið
Á þessu leikári munu Borgarleikhúsið og Borgarbókasafnið bjóða upp á þrjá viðburði undir heitinu Leikhúskaffi, í tengslum við sviðsetningar Borgarleikhússins á Bláa hnettinum, Sölku Völku og Elly. Gestum Leikhúskaffis er boðið í Borgarbókasafnið Kringlunni þrjá fimmtudagseftirmiðdaga þar sem spjallað er við aðstandendur sýninganna sem um ræðir ásamt því að rölta yfir í Borgarleikhúsið og fá skoðunarferð og kynningu á leikmynd og annarri umgjörð sýninganna.