Björgvin Þór ráðinn skólastjóri í Melaskóla

Skóli og frístund

""
Björgvin Þór Þórhallsson hefur verið ráðinn skólastjóri Melaskóla úr hópi tólf umsækjenda.
Björgvin Þór hefur auk kennaranáms lokið 90 ECTS einingum í meistaranámi í stjórnunarfræði menntastofnana og er með diplómu í tölvu- og upplýsingatækni. Hann hefur víðtæka reynslu af skólastarfi og hefur starfað sem grunnskólakennari, aðstoðarskólastjóri og skólastjóri, síðast við Klébergsskóla á Kjalarnesi.

Björgvin Þór tekur við nýju starfi 11. apríl nk.