Biophilia hefur haft jákvæð áhrif á kennsluaðferðir

Skóli og frístund Mannlíf

""

Menntaverkefnið Biophilia sem varð til í samstarfi Bjarkar Guðmundsdóttur, Reykjavíkurborgar og HÍ fyrir þremur árum hefur skilað sér til allra norrænu ríkjanna og haft jákvæð áhrif í skapandi skólastarf.  

Í vikunni komu saman fulltrúar norrænna skóla sem tekið hafa þátt í Biophiliu-menntaverkefninu og sýndu afrakstur sinnar vinnu en Norræna ráðherranefndin fjármagnaði verkefnið á formennskuári Íslendinga í norrænu samstarfi á árinu 2014. Menntamálaráðuneytið hefur haft veg og vanda af norræna samstarfinu og hefur Biophilia verið á flugi í átta borgum undanfarin tvö ár.

Helstu niðurstöður verkefnisins sýna að Biophilia hefur haft jákvæð áhrif á kennsluaðferðir og greina má aukinn áhuga kennara, sem tóku þátt í því, á að beita skapandi aðferðum við kennslu. Einnig kom fram að í flestum  þátttökulöndunum merktu menn aukinn áhuga nemenda á tónlist og náttúruvísindum í kjölfar kennslunnar. Björk Guðmundsdóttir ávarpaði fund Biophiliu-kennara á Norðurlöndum og sagði m.a. að nú stæði til að endurskoða allt kennsluefnið og setja inn í nýja uppfærslu á smáforritum sem eru undirstaða menntaverkefnisins.   

Þriggja ára þróunarverkefni um Biophiliu á Norðurlöndum lýkur í lok þessa árs.  33 skólar, 147 kennarar og 3.454 nemendur hafa tekið þátt í því. 

Markmiðið með Biophilia menntaverkefninu er að hvetja börn til að kanna eigin sköpunargáfu og læra um tónlist, náttúru og vísindi með hjálp nútímatækni og þverfaglegrar kennslu. 

Frekari upplýsingar um Biophiliu menntaverkefnið eru á vefslóðinni www.biophiliaeducational.org