Börn sem þurfa frístundaþjónustu sökum fötlunar stendur í sumar til boða heildstæð sumarþjónusta.
Foreldrar 6-16 ára barna sem stunda nám í Klettaskóla og sækja frístundastarf í Guluhlíð og Öskju geta í sumar valið hvenær þau taka tveggja vikna sumarfrí í stað þess að vera bundnir við fasta og jafn langa sumarlokun og áður.
Möguleiki verður fyrir foreldra að sækja um undanþágu frá sumarleyfisákvæði uppfylli þau til þess skilyrði sem sett eru fram en þessari viðbótaþjónustu er ætlað að tryggja meiri stöðugleika í þjónustu við börn og unglinga sem þurfa mikla umönnun og þola illa rask.

Starfshópur komst að þeirri niðurstöðu að heildstæð þjónusta yfir sumartímann myndi leiða til betri og sveigjanlegri þjónustu við börnin og fjölskyldur þeirra og yrði að öllum líkindum til þess að jafnari nýting yrði á plássum yfir sumarið. Með því að hafa opið allar vikur ársins í frístundastarfi 6-16 ára barna við Klettaskóla gæfist jafnframt meiri möguleiki á heilsársráðningu starfsfólks.
I Klettaskóla eru börn sem þurfa mikla þjónustu sökum fötlunar. Talið er að foreldrar um 17 reykvískra barna í skólanum muni geta sótt um undanþágu vegna sumarleyfisákvæðis og er áætlaður viðbótarkostnaður vegna þess um 3,7 milljónir króna á þessu ári.
Börn í sértæku frístundastarfi annars staðar í borginni fá jafnframt þjónustu í allt sumar nema í þær tvær vikur sem lokað er. Þá eru almenn frístundaheimili lokuð í 3-4 vikur.