Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir listmálari opnar sýningu í Borgarbókasafninu Gerðubergi laugardaginn 30. apríl kl. 14. Á sýningunni gefur að líta minningarbrot frá ferðalögum um Ísland, sýn yfir landið úr fjallgöngum, gönguferðum og öðrum ferðalögum.
Hrafnhildur Inga segir sjálf að veður, vatn og jörð, haf og himinn sé ótæmandi efniviður í málverkum sínum.
"Minningarbrot frá ferðalögum um Ísland, sýn mín yfir landið úr fjallgöngum, gönguferðum og öðrum ferðalögum. Íslenskt veðurfar, vatnagangur, ofstopaveður á eyðilegri strönd eða öræfalandslag eru einkennandi viðfangsefni; það er það sem ég sé innra með mér þegar ég byrja á hverri nýrri mynd. Það er ekki undarlegt þó þetta myndefni sé mér hugleikið því ég ólst upp í Fljótshlíðinni með Markarfljótið dynjandi á aurunum neðan við æskuheimili mitt. Þar hef ég bæði séð niðurrifsöflin og uppgræðsluna í gegnum tíðina og þær breytingar sem ásýnd landsins tekur á sig við minnstu hræringar.“
Hrafnhildur Inga hefur haldið fjölda einkasýninga m.a. Ketilhúsinu, Hafnarborg, á Skriðuklaustri, í Start Art, Gallerí Fold, og Gallerí Ormi. Hún hefur tekið þátt í mörgum samsýningum á Íslandi og erlendis, svo sem í More North Gallery í New York, Nýmálað 2 á Kjarvalsstöðum, Spor þúsunda kvenna, listgjörningur í Garðabæ og Factory-Art New York. Verk eftir hana hafa verið til sýnis á listamessunum Art Copenhagen, Art Vilnius og Galeriazero í Barcelona. Verk hennar eru í eigu einkasafnara hér á landi og erlendis og í opinberum stofnunum víðsvegar um land.
Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir er fædd að Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð og ólst þar upp. Hún stundaði myndlistarnám við Myndlistaskóla Reykjavíkur 1978 og 1979, Myndlista og handíðaskóla Íslands, nú Listaháskóla Íslands, 1980-1984 og lauk þaðan prófi í grafískri hönnun. Árin 1999 og 2000 stundaði hún nám í olíumálun við Myndlistarskóla Kópavogs.