Augað 2016 – stuttmyndahátíð 9. bekkinga í sex skólum

Skóli og frístund

""
Alls kepptu 43 stuttmyndir til verðlauna á tveimur kvikmyndahátíðum sex grunnskóla sem fram fóru í Laugarásbíói og Sambíói Álfabakka í dag. 
Sigurvegarar á þessum bráðskemmtilegu hátíðum voru annars vegar nemendur úr 9. bekk í Ölduselsskóla með myndina Vonleysi sem sýnd var á hátíðinni í Sambíói á Álfabakka- myndina gerðu Elínborg Una Einarsdóttir, Inga María Matthíasdóttir. Alexandra Guðmundsdóttir og Hildur María  Arnalds.
 
Á hátíðinni sem fram fór í Laugarásbíói fóru nemendur úr 9. bekk í Laugarlækjarskóla með sigur af hólmi með myndinni Má bjóða þér köku.  Höfundar hennar eru Aron Þór Mai, Benedikt Axelsson, Daníel Ernir Njarðarson, Helga Björg Heiðdal, Jason Andri Gíslason, Jóhanna Sól Erlendsdóttir, Jón Þór Lemery og Selma Kristín Eydal.
 
Stuttmyndirnar á Auganu eru afrakstur af stuttmyndaviku 9. bekkinga í 2 hverfum í borginni – annars vegar í Breiðholti (Breiðholtsskóli, Hólabrekkuskóli og Ölduselsskóli) og hins vegar úr Laugardal og Háaleiti (Laugalækjarskóli, Vogaskóli og Háaleitisskóli).
 
Á hátíðinni voru sýndar stiklur úr öllum myndunum og þær 15 bestu sýndar í heild sinni.
 
Í stuttmyndaviku semja nemendur kvikmyndahandrit og fá kennslu í tökum og klippingu. Verkefnið hefur notið mikilla vinsælda meðal nemenda.