Ásmundur K. Örnólfsson, aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Ægisborg, hlaut Orðsporið 2016 sem jafnan er veitt á degi leikskólans. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Ásmundi þessa viðurkenningu fyrir að hafa skarað fram úr við að fjölga körlum í stétt leikskólakennara.
Ásmundur á að baki langan og farsælan feril sem leikskólakennari og aðstoðarleikskólastjóri. Í umsögn valnefndar um Orðsporið segir að Ásmundur hafi alla tíð verið sterk fyrirmynd fyrir karla sem starfa í leikskólum og ekki síst leikskólabarna. Ásmundur hefur unnið ötullega að málefnum leikskólans og lagt sitt af mörkum til að efla orðspor leikskólakennarastarfsins. Með framgöngu sinni hefur Ásmundur sýnt og sannað að karlar eiga jafnmikið erindi í starf leikskólakennara og konur. Þá er það ánægjuleg staðreynd að nokkrir piltar sem í æsku voru nemendur hjá Ásmundi eru nú komnir til starfa í leikskólum.
Auk Ásmundar voru leikskólarnir Grænaborg og Rauðhóll tilnefnd. Í báðum leikskólum hefur verið markvisst unnið að því að menning skólans geri vinnustaðinn eftirsóknarverðan óháð kyni og er eftirtektarverkt hve margir karlmenn hafa starfað í báðum skólum. Leikskólastjórnendur Grænuborgar og Rauðhóls eru kunnir af því að hvetja sitt fólk til að mennta sig til réttinda í leikskólakennslu.