Ársskýrsla skóla- og frístundasviðs 2015 komin út

Skóli og frístund

""
Í ársskýrslu er farið yfir stefnumótandi ákvarðanir skóla- og frístundaráðs, helstu áherslur í stefnu- og starfsáætlun sviðsins, faglega starfsemi, símenntun starfsfólks, viðburði, styrki, verðlaun og fl. 
Skóla- og frístundasvið er stærsta fagsvið borgarinnar, hvort heldur þegar litið er til fjölda starfsfólks eða stofnana. 
 
Í ársskýrslunni eru rakin meginstraumar í starfseminni á árinu 2015, s.s. stefnumótandi ákvarðanir og framkvæmd þeirra. Einnig er farið yfir faglegar áherslur í starfsemi leikskóla, grunnskóla, frístundamiðstöðva, skólahljómsveita og í fullorðinsfræðslu og raktir helstu viðburðir á vegum sviðsins, s.s. styrkveitingar og verðlaunaveitingar. 
 
Skúli Helgason formaður skóla- og frístundaráðs ritar formála í ársskýrslu og segir m.a.,

"Það er bjargföst trú mín að farsælt skólastarf í framtíðinni byggi á því að við aukum áhrif og vægi nemandans þegar kemur að vali á viðfangsefnum, námsáherslum og framvindu. Stefna okkar um nemendamiðað skólastarf sem samþykkt var á árinu er liður í þessu og ég er þeirrar skoðunar að aukið lýðræði í skóla- og frístundastarfi sé besta svar okkar við háu brotthvarfi nemenda í íslensku skólakerfi."