Á Alþjóðlega safnadaginn á Íslandi 18. maí verður haldið upp á 10 ára afmæli Landnámssýningarinnar í Aðalstræti og býðst gestum frítt inn á safnið í tilefni dagsins. Einnig verða sérstök afmælistilboð í safnbúðinni. Þá verður einnig frítt inn á Listasafn Reykjavíkur.
Þennan dag verður Hjörleifur Stefánsson arkitekt með hádegisleiðsögn um Landnámssýninguna sem hefst kl. 12:10. Hjörleifur var verkefnastjóri sýningarinnar og mun hann skýra frá gerð hennar og hvernig farið var að því að gera fornleifarannsókninni skil á jafn myndrænan og áhugverðan hátt eins og raun ber vitni.
Kl. 17:00 þennan sama dag mun Orri Vésteinsson fornleifafræðingur fara með gesti í útileiðsögn, en Orri hafði umsjón með fræðilegu innihaldi sýningarinnar. Þátttakendur hittast í anddyri sýningarinnar þar sem Orri tekur á móti hópnum.
Þá verður á sýningunni hægt að stilla sér upp með vopn, hjálma og aðra víkingaleikmuni og smella af mynd. Skemmtilegt fyrir alla fjölskylduna!
Frá klukkan 15:00 -17:00 fá gestir að spreyta sig á fjaðurpennaskrift á kálfsskinn með heimalöguðu jurtableki undir leiðsögn Svanhildar Maríu Gunnarsdóttur.
Sýningin er opin frá 9:00-20:00 og eru allir velkomnir!
Ennfremur er frítt inn á Listasafn Reykjavíkur þann 18. maí milli kl. 10–17
Deginum er ætlað að vekja athygli á innra starfi safna og mikilvægi faglegrar varðveislu og miðlunar.
Í ár eru söfn um víða veröld hvött til að líta út fyrir veggi safnanna og huga menningarlegu, sögulegu og náttúrulegu landslagi.
Listasafn Reykjavíkur hefur í samstarfi við vefútgáfu Grapevine útbúið stafræna leiðsögn um útilistaverk í miðborginni þar sem gefur að líta texta og fallegar ljósmyndir af verkunum. Á alþjóðlega safnadeginum verður leiðsögnin gerð aðgengileg á grapevine.is þar sem hægt verður að fara í skoðunarferð á vefsíðunni eða fylgja kortinu eftir í gegnum farsíma og fræðast um og skoða útilistaverkin með eigin augum.
Frítt inn í tilefni afmælisins og hins Alþjóðlega safnadags.