Í dag, 5. október, er degi kennara fagnað um heim allan. Yfirskriftin að þessu sinni er: Metum kennara að verðleikum – styrkjum stöðu þeirra.
Markmiðið með deginum hefur ávallt verið að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem kennarar gegna í heiminum – en líka að efla samtakamátt kennara og huga að hvernig menntun barna verður best háttað í framtíðinni. Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur frá árinu 1994, en tilhans var stofnað að frumkvæði UNESCO og alþjóðasamtaka kennara.
Efnt verður til Skólamálaþings KÍ á Alþjóðadegi kennara þar sem fjallað verður um faglega forystu kennara. Þá verður blásið á nýjan leik til smásagnasamkeppni KÍ og Heimilis og skóla.