Á borgarstjórnarfundi í dag var samþykkt tillaga borgarstjórnar um óbreytt laun kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg.
Tillagan gengur út á að laun borgarfulltrúa haldist óbreytt þar til Alþingi hefur haft tækifæri til að bregðast við úrskurði kjararáðs um 45% launahækkun æðstu ráðamanna. Bregðist Alþingi ekki við fyrir 31. desember nk. er því beint til forsætisnefndar að gera breytingu á samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg.
Tillagan í heild sinni
Tillaga borgarstjórnar um óbreytt laun kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg
Borgarstjórn beinir því til forsætisnefndar að ákveða að tímabundið nemi laun borgarfulltrúa 77,82% af þingfararkaupi eins og það var 28. október sl. eða fyrir uppkvaðningu úrskurðar kjararáðs nr. 2016.3.001. Hið sama gildi um launagreiðslur annara kjörinna fulltrúa sem taka mið af þingfararkaupi. Þessi tímabundna ráðstöfun skal standa yfir þar til Alþingi hefur haft tækifæri til að bregðast við úrskurði kjararáðs eða eigi síðar en til 31. desember nk. Bregðist Alþingi ekki við úrskurðinum er því beint til forsætisnefndar að gera breytingu á samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg.