Samstarfsverkefni um nám og velferð barna með annað móðurmál er hafið í tengslum við innleiðingu fjölmenningarstefnunnar Heimurinn er hér.
Fyrir skömmu var haldinn undirbúningsfundur um verkefnið Allir með - um nám og velferð barnanna okkar. Það snýst um fræðslu á nokkrum tungumálum fyrir foreldra af erlendum uppruna, fræðslu sem hefst með skipulegum hætti á næsta skólaári. Fyrirhuguð fræðsla er m.a. liður í innleiðingu fjölmenningarstefnunnar Heimurinn er hér.
Samstarfsverkefnið Allir með er á vegum SAMFOK´s -foreldrasamtaka grunnskólabarna í Reykjavík, Móðurmáls, samtaka um tvítyngi og W.O.M.E.N-félags kvenna af erlendum uppruna. Þá kemur skóla- og frístundasvið, Heimili og skóli, Félag foreldra leikskólabarna og fl. að verkefninu.
Undirbúningsfundurinn tókst vel og lofar góðu um framhaldið.