Gjörningurinn Eitt þúsund norræn rómantísk sítrustré (One Thousand Northern Romantic Citrus), 2015-2016 eftir bandaríska myndlistarmanninn Michael Joaquin Grey fór fram á bílastæðinu við Lögberg á Þingvöllum í hádeginu í dag.
Gjörningur Greys tengist nýju ljósmyndaverki listamannsins sem unnið var sérstaklega fyrir sýninguna í Hafnarhúsi og nefnist Orange@Thingvellir. Gjörningurinn fór þannig fram að listamaðurinn kom á Þingvelli ásamt hópi grunnskólanemenda í morgun. Þar fór fram táknræn athöfn þar sem listamaðurinn afhenti æskunni sítrustréð til umsjár og tóku þau tréð með sér til baka í skólann sinn þar sem þau munu annast það um ókomna tíð eða á meðan tréð lifir.
Michael Joaquin Grey vill með þessu benda á að við lifum á tímum mikilla breytinga bæði hvað varðar veðurfar í heiminum og einnig samsetningu þjóða. Þannig vitum við ekki hvað mun teljast þjóðlegt að öldum liðnum og náttúrufar getur gjörbreyst og sítrustré mögulega vaxið á Íslandi í framtíðinni.
Gjörningurinn er í tengslum við sýninguna Aftur í sandkassann – listir og róttækar kennsluaðferðir, sem opnuð verður í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi í kvöld föstudaginn 15. janúar kl. 20.
Á samsýningunni Aftur í sandkassann - listir og róttækar kennsluaðferðir hefur sýningarstjórinn, Jaroslav Anděl, valið saman verk samtímalistamanna sem spyrja spurninga um eðli og hlutverk menntunar og líta jafnframt á sköpun sem lykilþátt í samfélaginu. Verk listamanna á borð við Michael Joaquin Grey, Ane Hjort Guttu og Priscila Fernandes mynda nokkurskonar kjarna sýningarinnar ásamt verki Luis Camnitzer sem teygir sig út fyrir veggi safnsins. Þar að auki eru á sýningunni verk eftir Jim Duignan, Markus Kayser, James Mollison, Eva Koťátková og listahópinn The Society for a Merrier Present. Í tengslum við sýninguna fer fram metnaðarfull fræðslu – og viðburðadagskrá fyrir almenning og fagfólk á sviði menntamála.