Æfingabúðir FC Barcelona

""

Það ríkti mikil gleði og ánægjan skein út úr hverju andliti hjá ungum og efnilegum knattspyrnustúlkum sem voru að klára sinn síðasta dag á æfingum undir stjórn knattspyrnuþjálafara frá FC Barcelona.

 

 

 

Fótboltaskóli FC Barcelona hefur gengið eins og í sögu á Valsvellinum við Hlíðarenda undanfarna daga. Veðrið hefur leikið við 300 stúlkur og hóp af þjálfurum, bæði frá Barcelona og Íslandi. Yfirþjálfari fótboltaskóla FC Barcelona, Isaac Oriol Guerrero, segir íslenskar stúlkur einstaklega færar með knöttinn, kurteisar og fljótar að tileinka sér nýja tækni. Miðað við þá gleði og ánægju með þennan skóla þykir nokkuð ljóst að stefnt verður að því að fá þessa glæsilegu fulltrúa aftur til Íslands, en því miður urðu fjölmargar stúlkur að sitja heima þar sem námskeiðið fylltist á skammri stundu.

 

Skólaslit æfingabúðanna fór fram á Valsvellinum að Hlíðarenda í dag og þangað mættu m.a. varaforseti FC Barcelona, Carles Vilarrubí i Carrió, mun halda stutta tölu ásamt öðru góðu fólki.

Meðfylgjandi myndir sýnir gleði stúlknana þegar síðasta æfingin fór fram nú í dag.