Aðgerðaáætlun í leik- og grunnskólum

Stjórnsýsla Skóli og frístund

""
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag aðgerðaáætlun í leik- og grunnskólum. Í henni felst aukning á framlögum til sérkennslu, efniskostnaðar og faglegs starfs. Þá mun fjármagn til hráefniskaupa aukast með hækkun fæðisgjalda
Strax á þessu ári mun Reykjavíkurborg hækka framlög til sérkennslu í leik- og grunnskólum. Framlög til kaupa á námsgögnum í leikskólum verða hækkuð og inntaka barna sem fædd eru í mars og apríl 2015 hefst frá og með næstu áramótum.
 
Ráðist verður í sameiginlegt átak með fagfélögum leikskólastarfsfólks og félagi foreldra leikskólabarna um nýliðun og fjölgun leikskólakennara með það fyrir augum að gera starf á leikskólum eftirsóknarverðara.
 
Gjöld vegna mataráskriftar í skólum sem foreldrar greiða munu hækka til að bæta matinn í skólunum og renna tekjurnar alfarið til skólamötuneyta í kaup á hráefni.  Reykjavík verður þá með mjög sambærilega gjaldskrá vegna mataráskriftar við þau sveitarfélög sem leggja mest í hráefnisframlög til skólamötuneyta. Leikskólagjöld og önnur gjöld vegna skólagöngu barna verða engu að síður áfram þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu. (sjá töflu)  
 
Aðgerðaáætlunin sem er í tíu liðum var samþykkt í borgarráði í morgun. Undanfarna daga hefur borgarstjóri, ásamt formanni skóla- og frístundaráðs, og embættismönnum skóla- og frístundasviðs, fundað með samráðshópum leikskólastjóra og grunnskólastjóra. Boðað var til fundanna í tengslum við umræðu um fjármál leik- og grunnskóla í Reykjavík. Í kjölfar þessara funda var lögð lokahönd á gerð aðgerðaáætlunar í tíu liðum sem á að bæta skólastarf í borginni. Aðgerðaáætlunin var borin undir sömu samráðshópa og athugasemdir teknar til greina.
 
„Þetta voru mjög gagnlegir fundir. Í sex mánaða uppgjöri borgarinnar sáum við fram á betri tíma í fjármálum borgarinnar. Þetta er ávöxtur aðhalds á öllum sviðum, en líka aukinna tekna. Í aðgerðunum endurspeglast sú áhersla að skólamál og velferð eru forgangsmál þegar hagur vænkast,,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.  „Segja má að við nýtum nú tækifærið til að hraða þessari uppbyggingu í skólunum. Með því erum við að leggja nýjan grunn fyrir áframhaldandi skólaþróun og uppbyggingarstarf og stuðla að því að skólar borgarinnar verði áfram leiðandi í fagstarfi, gæðum og árangri.,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
 

Aðgerðaáætlun

 

• Sérkennsla, langtímaveikindi starfsmanna og skólaakstur

Leikskólar og grunnskólar fái aukið fjármagn vegna langtímaveikinda starfsmanna, sérkennslu og skólaaksturs. Alls er um að ræða um 679 mkr. vegna haustsins 2016. 

 
• Meira fé til hráefniskaupa vegna skólamáltíða

Fæðisgjald verður hækkað í leik- og grunnskólum um 100 kr/dag frá 1. október nk.  Þeir fjármunir munu fara óskiptir í hráefnisinnkaup til að bæta gæði máltíða.  Skólar í Reykjavík munu eftir breytinguna búa við sambærileg framlög til hráefniskaupa og þau sveitarfélög sem leggja mest í matarinnkaup fyrir skólana.
 
• Framlög til kaupa á námsgögnum í leikskólum hækka umtalsvert

Framlög til kaupa á námsgögnum til skapandi starfs í leikskólum hækka úr 1.800 kr. á barn  í 3.000  kr.
 
• Efling faglegs starfs í leikskólum

Meira fjármagni, alls 24,8 mkr. á þessu hausti verður veitt til faglegs starfs í leikskólum með viðbótarframlögum til undirbúningsstarfa fagfólks sem og ófaglærðra starfsmanna. Efling faglegs starfs í leikskólum verði jafnframt skoðuð við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2017.
 
• Efling faglegs starfs í grunnskólum

Auknu fjármagni eða  60 mkr. verður veitt til faglegrar stjórnunar í grunnskólum haustið 2016. Efling faglegs starfs í grunnskólum verði jafnframt skoðuð við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2017.
 
• Inntaka barna fæddra í mars og apríl 2015

Opnað verður fyrir inntöku barna sem fædd eru í mars og apríl 2015 á leikskóla borgarinnar frá og með áramótum 2017. Nákvæm dagsetning inntöku í hverju tilviki verður þó háð rými og stöðu starfsmannamála á viðkomandi leikskóla. .Jafnframt verður ráðist í sameiginlegt átak með fagfélögum leikskólastarfsfólks um nýliðun og fjölgun leikskólakennara með það fyrir augum að gera starf á leikskólum eftirsóknarverðara.
 
• Endurskoðun úthlutunarlíkana leik- og grunnskóla og frístundamiðstöðvar

Unnin verði ný úthlutunarlíkön fyrir leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðvar sem byggð eru á fyrirliggjandi gögnum og frekari fjárhagslegri greiningu á rekstrinum. Úthlutunarlíkönin taki gildi fyrir skólaárið 2017-18.
 
• Meðferð á halla frá 2015

Leik- og grunnskólar þurfi ekki að mæta halla vegna 2015 á árinu 2016.  Staða einstakra starfstaða verður metin í ljósi ábendinga stjórnenda um óviðráðanleg ytri skilyrði.
 
• Hækkun framlaga vegna kjarasamningbundinna launahækkana

Við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 er gert ráð fyrir að fjárveitingar til skóla- og frístundasviðs hækki vegna kjarasamningsbundinna hækkana launa sem gerðir voru í lok árs 2015. Hækkunin milli áranna 2015 og 2017 eru 3,3 milljarðar kr, þar af 1 milljarður króna á árinu 2016. Þegar náðst hafa samningar um kjör grunnskólakennara við félag grunnskólakennara mun þessi upphæð hækka enn frekar.
 
• Bætt upplýsingagjöf og aukinn stuðningur við starfsstöðvar

Lögð verði áhersla á bætta upplýsingagjöf, aukna ráðgjöf og stuðning við stjórnendur sem þess óska varðandi fjárhag og rekstur sinna starfsstöðva.
 

Hækkun mötuneytisgjaldskrár

Mötuneytisgjaldskrá hækkar um 100 krónur í leik- og grunnskólum. Það á að tryggja góðan og næringarríkan mat handa öllum en fjármagn til hráefniskaupa verður mjög sambærilegt við það sem gerist hjá þeim sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu sem mest leggja í matarinnkaup fyrir skólamötuneyti.
 
Eftir sem áður verður Reykjavík með ein lægstu leikskólagjöld á landinu miðað við fulla verðskrá og átta tíma vistun á dag.

Aðgerðaáætlun í skólamálum