32 börn og ungmenni fengu nemendaverðlaun

Skóli og frístund

""
Nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs voru afhent í 14. sinn 23. maí og fór athöfnin fram í Vættaskóla í Grafarvogi. 
Grunnskólarnir í borginni tilnefna nemendur til verðlaunanna og bárust að þessu sinni 32 tilnefningar um nemendur sem þykja hafa skarað fram fram úr í námi,  félagsfærni, virkni í félagsstarfi eða hafa sýnt frábæra frammistöðu á tilteknu sviði í skólastarfinu. Handhafar verðlaunanna voru úr 4. - 10. bekk og voru skólafélögum sínum fyrirmyndum á ýmsum sviðsum, s.s. í íþróttum, listum, samskiptahæfni, nýsköpun og tæknimennt. 
 
Allir verðlaunahafar fengu bók og viðurkenningarskjal. Í ár fengu þeir bókina Koparborgin eftir Ragnhildi Hólmgeirsdóttur sem hlaut barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs sem besta frumsamda íslenska bókin á árinu 2015 og yngri verðlaunahafar fengu bókina Ugla og Fóa og maðurinn sem fór í hundana eftir Ólaf Hauk Símonarson en Linda Ólafsdóttir fékk barnabókaverðlaunin fyrir myndskreytingar sínar í bókinni.
 
Við athöfnina í Vættaskóla léku nemendur á hljóðfæri, m.a. Eurovisionlög á píanó fiðlu og trommur. 
 
Handhafar nemendaverðlauna 2016 eru: 
Ingimundur  Bergmann Sigfússon 10. bekk Austurbæjarskóla
Berglind Björnsdóttir 10. bekk Árbæjarskóla

Kári Freyr Kristinsson 7. bekk Ártúnsskóla

Kristófer Karl Guðnason 9. bekk Breiðholtsskóla

Mikael Trausti Viðarsson 5. bekk Dalskóla

Mary Jemrio Soriano Malana 10. bekk Fellaskóla

Auðun Bergsson 8. bekk Foldaskóla

Brynhildur Hjaltested 7. bekk í Fossvogsskóla

Tómas Viðar Árnason 10. bekk í Hagaskóla

Sóley Nótt Jerzysdóttir 7. bekk í Hamraskóla

Benedikt Aron Sigurþórsson 10. bekk í Háaleitisskóla

Einar Þorri Arnarson 10. bekk í Hlíðaskóla
Ísak Richardshann 10. bekk í Hólabrekkuskóla
Stefanía Tera Hansen 6. bekk í Húsaskóla
Katla Björg Jónsdóttir 10. bekk í Kelduskóla
Jóhann Stígur Eiríksson 10. bekk í Klettaskóla
Jóhanna Líf Sigþórsdóttir 10. bekk í Klébergsskóla
Finnur Kaldi Jökulsson 10. bekk Landakotsskóla

Þorgils Máni Jónsson 10. bekk Laugalækjarskóla

Hlynur Þórhallsson 5. bekk Laugarnesskóla

Vigdís Selma Sverrisdóttir 7. bekk Melaskóla

Guðjón Ingi Rúnarsson 10. bekk Norðlingaskóla

Alexandra Naomí Ástudóttir 5. bekk Reykjavik International School

Sædís Ósk Gunnlaugsdóttir 10. bekk Rimaskóla

Anna Kolbrún Ólafsdóttir 7. bekk Selásskóla

Sóley Halldórsdóttir 10. bekk Seljaskóla

Dharma Elísabet Tómasdóttir 4. bekk í Skóla Ísaks Jónssonar
Rannveig Klara Guðmundsdóttir 10. bekk Sæmundarskóla
Jens Arinbjörn Jónsson 10. bekk Tjarnarskóla

Lovísa Halldórsdóttir 9. bekk Vogaskóla

Kristján Gylfi Þórisson 10. bekk Vættaskóla

Elínborg Una Einarsdóttir 9. bekk Ölduselsskóla