110 ár frá því að þilskipið Ingvar fórst

Mannlíf Menning og listir

""
Illugi Jökulsson rithöfundur flytur hádegiserindi þann 7. apríl í Sjóminjasafninu í Reykjavík í tilefni af því að þann dag eru 110 ár liðin frá því að þilskipið Ingvar fórst fyrir utan Viðey með 20 manns innanborðs.
Þúsundir Reykvíkinga fylgdust skelfingu lostnir með því, þegar skipverjar á þilskipinu Ingvari slitnuðu úr reiðanum og fórust einn af öðrum meðan skipið liðaðist í sundur á skerinu við Viðey. Hafði sú sýn djúpstæð áhrif á þá sem á horfðu.
 
Engin björgun reyndist möguleg í aftakaverði en miklar umræður um mikilvægi björgunaraðgerða á sjó hófust í kjölfarið, því þennan dag fórust þrjú skip við Íslandsstrendur og alls 70 skipverjar.
 
Fyrirlesturinn fer fram í Sjóminjasafninu í Reykjavík kl. 12:10-12:50.
 
Allir velkomnir og frír aðgangur.
 

Myndin er eign safnsins en hana tók Sigríður Kristín Birnudóttir.