11 framboð skila kjörgögnum til yfirkjörstjórna

Kosningar

""

Yfirkjörstjórnir í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður funduðu í Ráðhúsinu í dag til að taka við framboðum og meðmælum vegna alþingiskosninga sem fram fara þann 29. október nk. 

Framboðsfrestur rann út kl. 12.00 í dag og fulltrúar 9 framboða mættu á fund kjörstjórnanna og skiluðu kjörgögnum en tvö framboð skiluðu sínum gögnum á miðvikudaginn var. Þessi stjórnmálasamtök hafa skilað sínum gögnum og verða að öllum líkindum í framboði í báðum kjördæmum:

Alþýðufylkingin

Björt framtíð

Dögun

Framsóknarflokkurinn

Flokkur fólksins

Píratar

Samfylkingin

Sjálfstæðisflokkurinn

Viðreisn

Vinstri hreyfingin, grænt framboð

Að auki skilaði Húmanistaflokkurinn inn framboðsgögnum í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Nú fer fram yfirferð undirskrifta á meðmælendalistum og framboðslistum sem stendur fram eftir kvöldi. Yfirkjörstjórnirnar gera ráð fyrir að funda aftur í Ráðhúsinu kl. 14:00 á morgun laugardag til að úrskurða um gildi framboðanna að viðstöddum umboðsmönnum.