Vorhátíð í Háteigsskóla

Skóli og frístund

""

Líf og fjör var inni sem úti á vorhátíð Háteigsskóla sem haldin var á dögunum.

Hátíðin hófst á skrúðgöngu sem skólahljómsveit Austurbæjar leiddi og gengu nemendur fylktu liði í hverjum sínum lit eftir bekkjardeildum. Á skólalóðinni var boðið upp á útileiki og andlitsmálun, þá var þar bókamarkaður, flótamarkaður, kaffihús, íssala og hoppukastali svo eitthvað sé nefnt. Innan dyra var voru settar upp sýningar á verkefnum nemanda á liðnum vetri, s.s. myndlistarverk, handverk, stuttmyndir og fl. Vorhátíðin var fjölsótt í vorblíðunni og skemmtu nemendur og fullorðnir sér konunglega.