Vísindavika í Frostaskjóli

Skóli og frístund

""

Þau undur og stórmerki áttu sér stað í vikubyrjun að heill herskari af „brjáluðum vísindamönnum“ spratt fram úr öllum krókum og kimum í frístundaheimilum Frostaskjóls. 

 

Vera má að þetta hafi verið eitthvað sjaldgæft náttúrufyrirbæri (nú eða yfirnáttulegt fyrirbæri!), líkt og þegar rignir froskum eða þegar kornhringir byrja að myndast á ökrum. En allt eins gæti verið að öllu vísindavatninu sé um að kenna en það hafa börnin á frístundaheimilum Frostaskjóls þambað alla vikuna þar sem tilraunir og vísindi hafa verið í brennidepli. Alla vega hafa þau aldrei drukkið eins mikið vatn í hressingu eins og þegar vísindavatn er í boði þannig að kannski er hér komin góð leið til að auka vatnsneyslu barna, þó svo að mögulega hafi hún þessa aukaverkun í för með sér.



Hvað sem því líður, þá hafa starfsmenn og börn á frístundaheimilunum átt stórskemmtilega tilrauna- og vísindaviku þar sem ógnarkraft og átt líflegar samræður um hvað vísindi eru, hvernig hlutirnir virka og hvað er hægt að gera til að öðlast betri skilning á vísindum. En ekki var látið þar við sitja heldur fengu börnin að spreyta sig á ýmsum áhugahvetjandi tilraunum og verkefnum sem slógu vægast sagt í gegn. Meðal annars voru gerðar fjölbreyttar tilraunir með stöðurafmagn, kviksyndi var búið til og börnum hent út í (og bjargað upp úr áður en í óefni var komið :-), reyksprengjur, sem mynda mikinn og litríkan reyk voru smíðaðar, kristallar, hraunlampar og slefandi slím var búið til í tilraunastofum við mikinn fögnuð allra viðstaddra og loks má ekki gleyma að minnast á hina sívinsælu og merkilegu kók og mentos tilraun sem vakti rífandi lukku. 



Á þessum myndum má fá nasasjón af fjörinu í vísinda- og tilraunaviku.