Virkt unglingalýðræði skapar meiri samheldni

Skóli og frístund

""

Í félagsmiðstöðinni Þróttheimum taka nemendur virkan þátt í að skipuleggja félagslífið en rík áhersla er lögð á unglingalýðræði og að virkja alla til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Nemendaráðið er skipað unglingum í 8. 9. og 10. bekk Langholtsskóla og stendur það fyrir nemendafundum og setur sér markmið fyrir félagsstarfið.  Allur undirbúningur fyrir viðburði er á forsendum unglinganna og gerist á þeirra hraða.

Fyrir þremur árum var starfsfólki Þróttheima og mörgum unglingum orðið ljóst að kosningar í nemendaráð skóla og félagsmiðstöðvar væru oft á tíðum vinsældakosningar. Margir sem gjarnan vildu starfa í ráðinu þorðu ekki að bjóða sig fram því það krafðist þess m.a. að þeir færu upp á svið og héldu framboðsræðu fyrir skólafélagana.  Einnig þótti sýnt að mörg verkefni hvíldu á fáum nemendum í ráðinu, sérstaklega þegar líða fór á veturinn. Því var ákveðið í samstarfi við unglinga og skóla að leggja af kosningar til nemendaráðs en bjóða fremur þeim sem hefðu áhuga á að skipuleggja félagslífið að vera í ráðinu. Ennfremur var ákveðið að deila verkefnum niður á milli nokkurra undirráða, s.s. Þróttheimaráðs, ballráðs og íþróttaráðs.

Hlutverk nemendaráðsins:

  • Skipuleggja félagslíf nemenda skólans svo sem böll og aðra viðburði.
  • Halda utan um stærri viðburði og móta dagskrá félagsmiðstöðvarinnar.
  • Virkja skólafélaga og fá þá til að mæta á viðburði.
  • Hlusta eftir hugmyndum skólafélaga sinna og miðla þeim áfram.
  • Vera sýnileg í skólanum og félagsmiðstöðinni.
  • Sitja fundi og námskeið fyrir nemendaráð.
  • Sitja í nefndum fyrir nemendaráðið, skólann og Þróttheima.

Á hverju hausti er haldinn stórfundur í nemendaráðinu þar sem allir nemendur eru boðaðir og hefur mæting jafnan verið góð. Þá eru haldnir svokallaðir millistórfundir þar sem ýmis málefni sem brenna á unglingum eru rædd, s.s. tilnefningar og kosningar í skólaráð, klæðareglur SAMFÉS og tilnefningar og kosning á Landsmót SAMFÉS. Á stórfundi að vori er starfsárið svo gert upp til að reynslan nýtist á því næsta. 

Starfsfólkið í Þróttheimum og Langholtsskóla segir að virk þátttaka unglinganna í nemendaráðinu hafi skapað meiri samheldni meðal þeirra. Meiri blöndun sé á milli árganga og eldri nemendur taki vel á móti 8. bekkingum og leggi áherslu á að þeim líði vel í félagsmiðstöðinni. Framlag unglinganna spari líka tíma hjá starfsfólki sem geti á móti einbeitt sér að sjálfri kjarnastarfseminni. Það helsta sem mætti betur fara í lýðræðisstarfinu er að fá fleiri stráka til starfa, en stelpur hafi jafnan verið fleiri í nemendaráðinu og sýni almennt meiri áhuga á félagsstarfinu.