Vilt þú tilnefna til mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar?

Velferð Mannlíf

""

Óskað er eftir tilnefningum til mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar 2015. Tilnefna má einstaklinga, hópa, félagasamtök eða stofnanir sem á eftirtekarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi.

Tilnefningar ásamt rökstuðningi sendist rafrænt á netfangið mannrettindi@reykjavik.is. Frestur til að skila tilnefningum er til 30. apríl.

Handhafi mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar hlýtir að launum kr. 600.000,-

Verðlaunin verða afhent í Höfða af borgarstjóra Reykjavíkur á mannréttindadegi þann 16. maí en markmið hans er að vekja athygli á mannréttindastefnu borgarinnar.

Áður hafa hlotið mannréttindaverðlaun:

2008 Alþjóðahús

2009 Rauði Kross Íslands

2010 Blátt Áfram 

2011 Hinsegin dagar

2012 Listahátíðin List án landarmæra

2013 Samtök um kvennaathvarf

2014 Geðhjálp

Auglýsing á pdf formi.