Villa Bergshyddan er gestaíbúð í Stokkhólmi. Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga Norðurlanda getur leigt Villa Bergshyddan í Stokkhólmi í eina eða tvær vikur á ári hverju. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og rennur út 22. febrúar næstkomandi.
Almennt um Villa Bergshyddan
Bústaðurinn er þrjú herbergi og eldhús í endurbyggðu húsi frá 18. öld. Við dvölina gefst tækifæri til að kynnast Stokkhólmi og mynda tengsl með mögulega samvinnu í huga.
Hverjir geta sótt um?
Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga Norðurlanda getur leigt bústaðinn í eina eða tvær vikur á ári hverju.
Hvað kostar að leigja Villa Bergshyddan?
Dvalargjald fyrir eina viku er 1100 sænskar krónur.
Hvernig er sótt um?
Opnað verður fyrir umsóknir fyrir tímabilið 15. apríl - 29. september 2015 þann 15. desember 2014 og er umsóknarfrestur til 22. febrúar 2015.
Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Stokkhólms. Í umsókn skal tilgreina tilgang dvalar og óskir um dvalartíma ásamt kynningu á umsækjanda.
Fyrirspurnir og/eða ábendingar
Nánari upplýsingar veitir Auður Halldórsdóttir, verkefnastjóri á skrifstofu menningar- og ferðamálasviðs hjá Reykjavíkurborg, í gegnum síma 590 1520 og netfangið audur.halldorsdottir@reykjavik.is, og Hanan Haidari hjá menningarmálasviði Stokkhólmsborgar í gegnum netfangið hanan.haidari@stockholm.se.