Villa Bergshyddan - Gestaíbúð í Stokkhólmi

Menning og listir Mannlíf

""

Villa Bergshyddan er gestaíbúð í Stokkhólmi. Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga Norðurlanda getur leigt Villa Bergshyddan í Stokkhólmi í eina eða tvær vikur á ári hverju. Umsóknarfrestur rennur út 15. febrúar næstkomandi.

Almennt um Villa Bergshyddan

Bústaðurinn er þrjú herbergi og eldhús í endurbyggðu húsi frá 18. öld. Við dvölina gefst tækifæri til að kynnast Stokkhólmi og mynda tengsl með mögulega samvinnu í huga.

Hverjir geta sótt um?

Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga Norðurlanda getur leigt bústaðinn í eina eða tvær vikur á ári hverju.

Hvað kostar að leigja Villa Bergshyddan?

Dvalargjald fyrir eina viku er 1100 sænskar krónur.

Hvernig er sótt um?

Opnað verður fyrir umsóknir fyrir tímabilið 15. apríl - 29. september 2015 þann 15. desember 2014 og er umsóknarfrestur til 15. febrúar 2015.  

Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Stokkhólms. Í umsókn skal tilgreina tilgang dvalar og óskir um dvalartíma ásamt kynningu á umsækjanda.

Fyrirspurnir og/eða ábendingar

Nánari upplýsingar veitir Auður Halldórsdóttir, verkefnastjóri á skrifstofu menningar- og ferðamálasviðs hjá Reykjavíkurborg, í gegnum síma 590 1520 og netfangið audur.halldorsdottir@reykjavik.is, og Hanan Haidari hjá menningarmálasviði Stokkhólmsborgar í gegnum netfangið hanan.haidari@stockholm.se.