Viðmið um gæði í frístundastarfi

Skóli og frístund

""

Starfshópur um innra og ytra mat á frístundastarfi skóla- og frístundasviðs hefur nú gefið út Viðmið og vísbendingar fyrir innra og ytra mat á gæðum frístundastarfs. Viðmiðin verða lykilverkfæri við ytra mat á starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Reykjavík. 

Viðmiðin fjalla um gæði á fimm sviðum frístundastarfs: 1. Stjórnun, 2. Frístundastarf, 3. Mannauður, 4. Staðarbragur og 5. Innra mat. Viðmiðin byggja meðal annars á lögum sem lúta að starfsemi fyrir börn og unglinga, stefnu skóla- og frístundasviðs, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, grunnþáttum menntunar og Starfsskrá frístundamiðstöðva SFS. Í viðmiðunum er því lýst frístundastarfi sem er í góðu samræmi við skyldur og tilmæli laga og stefnu Reykjavíkurborgar um frístundastarf og getur því talist gæðastarf. Viðmiðin eiga einnig að nýtast vel við innra mat starfsstaðanna sjálfra. Viðmiðunum fylgja vísbendingar sem æltað er að styðja matsaðila í athugun sinni á frístundastarfinu.

Meginstef ytra mats á frístundastarfi er það sama og á öðrum stofnunum skóla- og frístundasviðs – að matið sé leiðbeinandi og framfara- og umbótamiðað og stuðli að betri starfsemi. Leiðarljósið er alltaf að börnum og ungmennum í borginni líði vel, fari stöðugt fram og þau öðlist uppeldi og menntun fyrir líf og starf.

Bæklingur um viðmiðin (pdf).