Viðgerð lokið á tölvukerfi Reykjavíkurborgar

Velferð Skóli og frístund

""

Viðgerð er nú lokið á tölvukerfi Reykjavíkurborgar. Bilun kom upp í kerfinu í morgun sem olli því að starfsemi símaversins lá niðri og viðskiptavinir náðu ekki sambandi.  

Unnið var að viðgerð og komst tölvukerfið í samt lag nú á ellefta tímanum. Nú er símasamband við símaverið í finu lagi og ekkert því til fyrirstöðu að hringja og fá þjónustu. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem bilunin kann að hafa valdið. Takk fyrir þolinmæðina.