Starfsfólk sorphirðu Reykjavíkurborgar vinnur ótrúlega erfitt starf á veturna þegar mikið snjóar eins og undanfarna daga. Því er um að gera að moka frá tunnum og huga að lásum og góðu aðgengi að sorpgeymslum.
Sorphirða Reykjavíkur kvartar nokkuð undan erfiðu aðgengi að sorpílátum þessa dagana og eru íbúar hvattir til þess að hjálpa til. Það er best gert með því að moka vel frá tunnunum og athuga hvort hurðir og lásar á sorpgeymslum séu nokkuð frosnir og hindri þannig starfsfólkið okkar í að komast að tunnunum.
Starfsfólk Reykjavíkurborgar gerir sér fulla grein fyrir því að ástandið er erfitt á meðan færð er slæm og verið er að moka götur. Öll möguleg tæki eru nú úti að vinna við mokstur. Íbúar eru beðnir um að sýna þolinmæði og aðstoða starfsfólk borgarinnar eftir fremsta megni við að komast í gegnum þennan harðindakafla.
Sorphirðan var að störfum í Vesturbæ í gær og náði ekki að ljúka hirðu þar enda voru aðstæðar með afbrigðum slæmar vegna óveðurs.
Í dag er unnið að því að losa tunnur í Miðborginni og á morgun í Laugardal og Háaleiti. Íbúar í þessum hverfum eru sérstaklega beðnir um að huga að aðgenginu svo að hirða gangi snurðulaust fyrir sig.
Hér eru helstu ástæður fyrir því að ekki er hægt að losa tunnur:
- Ekki búið að moka frá tunnum svo ekki er hægt að ná í þær.
- Frosnar hurðar og ekki hægt að opna þær.
- Frosnir lásar að sorpgeymslum, –gerðum og –skápum svo ekki er hægt að komast að tunnum.
- Bílar fyrir sem hefta aðgengi starfsfólks og hirðubíls.