"Við viljum ást og frið"

Skóli og frístund

""
Börn á frístundaheimilum borgarinnar minntu á réttindi sín á degi Barnasáttmálans sem er 26 ára í dag. 
Börn á frístundaheimilum í Grafarvogi létu ekki frostið á sig fá og mynduðu kærleikskeðju um Ráðhúsið í dag til að minna á réttindi barna um heim allan. Þau tengdu kærleikskeðjuna með peysum til að minna á þau mörgu börn í veröldinni sem njóta ekki þeirra sjálfsögðu réttinda að eiga heimili og að geta gengið í skóla.


"Við vilum ást og frið" var líka hrópað í árlegri réttindagöngu barna á frístundaheimilum í Hlíðum og í Miðborginni þegar rösklega 200 börn stormuðu niður Skólavörðustíginn með kröfuspjöld. Á þeim stóð m.a. Börn eru mikilvægari en peningar, Allir eiga að vera góðir vinir og Allir krakkar eiga rétt á að leika sér.  Göngunni lauk á Austurvelli þar sem Linus söng með börnunum og allir fengu kakómjólk og kleinur. 
 
Börn á frístundaheimilum borgarinnar vinna markvisst með efni Barnasáttmálans og hafa frístundaheimilin Eldflaugin, Halastjarnan og Draumaland fylgt þeirri vinnu eftir með þessari árlegu réttindagöngu.