Við brosum öll á sama máli

Skóli og frístund

""

Dagana 3. - 5. júní sl. var lokafundur á Íslandi í Comeniusarverkefninu "We all smile in the same language" sem leikskólinn Nóaborg tekur þátt í. 

Verkefnið er hluti af Menntaáætlun ESB og er fjölmenning í brennipunkti. Að verkefninu standa Nóaborg ásamt leik- og grunnskólum í  7 öðrum Evrópulöndum; Ítalíu, Spáni, Portúgal, Grikklandi, Kýpur, Bretlandi og Svíþjóð. Flestir skólarnir eiga það sameiginlegt að þá sækir hátt hlutfall barna af erlendum uppruna.

Á lokafundi verkefnisins var gerð lokaskýrslu og Fríða B. Jónsdóttur hjá Skóla- og frístundasviði fræddi hópinn um fjölmenningarlegt skólastarf í Reykjavík. Skúli Helgason, formaður Skóla- og frístundaráðs, tók á móti hópnum í Ráðhúsi Reykjavíkur og fulltrúar erlendu skólana heimsórru Nóaborg og Háteigsskóla.