Vetrarhátíð hefst á morgun 5. febrúar

Mannlíf Menning og listir

""

Vetrarhátíð verður haldin í 12. sinn dagana 5. - 8. febrúar og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Vetrarhátíð samanstendur af sex meginviðburðum og þar undir eru samanlagt um 200 viðburðir.

Megintilgangur Vetrarhátíðar er að skapa skemmtun í skammdeginu og gefa fólki tækifæri til að njóta menningar og samveru. Allt er frítt á Vetrarhátíð. Helstu styrktaraðilar Vetrarhátíðar eru Icelandair og Orka náttúrunnar. Samanlagt verður boðið upp á 200 viðburði meðan á hátíðinni stendur og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. 

Það verður mikið um að vera á opnunarkvöldi Vetrarhátíðar fimmtudaginn 5. febrúar. Marcos Zotes opnar Vetrarhátíð 2015 fimmtudagskvöldið 5. febrúar kl. 19:30 með ljóslistaverkinu Ljósvörðu sem umbreytir Hallgrímskirkju og þekur yfirborð þessa þekkta kennileitis í kraftmikilli sjónrænni upplifun. Raftónlistarmaðurinn Þóranna Dögg Björnsdóttir - Trouble spilar Electroacoustic sem er samspil á milli raftóna og hliðrænna tóna undir ljóslistaverki Marcosar á opnuninni. Snjóbrettapartý verður á Arnarhóli þar sem færustu snjóbrettamenn landsins sýna listir sínar undir taktföstum skífuþeytingi plötusnúða, áður en almenningi gefst tækifæri á að spreyta sig. Íslenskir og kanadískir listamenn leiða saman hesta sína á Edmonton calling ljóðadagskrá í Ráðhúsinu og tónleikum í Iðnó. Svo er hægt að ljúka kvöldinu með því að skoða ljóslistaverkið Any Colour You like eftir Jakob Kvist á Austurvelli.

Ljóslistaverk

Ljósalistaverk eftir innlenda og erlenda listamenn verða tendruð á opnunarhátíð Vetrarhátíðar þegar byggingar og almenningsrými verða lýst upp með fjölbreyttum hætti víðsvegar um borgina. Ljósalistaverkin varpi ljósi á fegurð borgarumhverfisins og vekja áhuga borgarbúa og gesta hennar á að skoða og upplifa borgina í gegnum ljós, leik og arkitektúr.

Verkið sem Marcos sýnir á Vetrarhátið 2015 heitir Ljósvarða og er meðal annars unnið með þátttöku ungra og upprennandi listamanna á leikskólanum Grænuborg sem eiga heiðurinn að teikningum sem varpað verður á kirkjuna og nema á samtímadansbraut Listaháskólans, sem heita: Sara Margrét Ragnarsdóttir, Erla Rut Mathiesen, Árný Rún Árnadóttir, Elísa Lind Finnbogadóttir, Una Björg Bjarnadóttir og Díana Rut Kristinnsdóttir. Marcos setti áður upp verkið Rafmögnuð náttúra á kirkjuna og vakti verkið athygli víðs vegar um heiminn. Marcos Zotes leitast eftir því að virkja borgarbúa til þess að upplifa manngert umhverfi sitt á óhefðbundin máta. Með þennan tilgang að leiðarljósi, nýtir Marcos borgina sem vettvang fyrir list sína og verk hans blása nýju lífi í opinber rými.

Verkið “Any Colour You Like“ eftir Jakob Kvist endurspeglar allar þær ákvarðanir sem við tökum og breytingar sem við upplifum í okkar daglega lífi. Breytingarnar kunna að virðast ósýnilegar frá degi til dags en þegar heildarsamhengi þeirra er skoðað koma afleiðingar gjörða okkar í ljós. Eins og umbreyting lita, þurfum við að sjá okkar eigið líf úr fjarlægð til að getað ígrundað það.  Innsetningin samanstendur af 60 ljósatúbum sem standa hlið við hlið og mynda sexhyrndan skúlptúr. Litur hverrar túbu er örlítið frábrugðin þeirri næstu. Notkun krómatískra litabreytinga í skúlptúrnum er innblásin af litahjóli Johanns Wolfgang von Goethe sem lýst er í bókinni „Theory of Colours“ frá árinu 1810.

Íslenskir ljóslistamenn munu klæða Perluna í nýjan búning að innan og utan. M.a. verður einum tanki breytt í stórfenglega tímavél. Þar verður að finna 60 ára afmælissýningu Ljóstæknifélags Íslands auk þess sem Íslensku lýsingarverðlaunin verða veitt.

Glerhjúpur Hörpu verður lýstur upp með Vetrarhátíðarverki sem Ólafur Elíasson hannaði sérstaklega fyrir Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar 2014. Þetta er skemmtilega hressandi útgáfa og hressilegri en margar aðrar sem Ólafur hefur gert fyrir glerhjúpinn. Verkið heitir Holding hands with Reykjavik og var frumflutt á viðburði sem bar titilinn „Architectural lighting- and art walk through Reykjavik“. Gestir Vetrarhátíðar 2015 geta því séð þetta ljóslistaverk Ólafs Elíassonar þá daga sem Vetrarhátíð stendur yfir, en síðan verður því skipt aftur út fyrir hefðbundar ljósaraðir frá Ólafi sem eru í eigu Hörpu.

Edmonton calling

Gestaborgin í ár - Edmonton calling er samstarf tónlistarmanna og ljóðskálda frá Reykjavík og Edmonton í Kanada. Fimmtudagskvöldið 5. febrúar verður rafmagnað andrúmsloft á ljóðakvöldi í Ráðhúsi Reykjavíkur þegar íslensku skáldin Anton Helgi Jónsson og Elías Knörr mæta Mary Pinkosky borgarskáldi Edmonton í skrautlegum og lifandi skáldskap. Ljóðadagskráin er í samstarfi við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Á tónleikunum í Iðnó stilla tónlistarmennirnir saman strengi sína og flytja tónlist hvors annars með skemmtilegri útkomu. Íslensku tónlistarmennirnir eru Pétur Ben, Sóley, Lay Low og Snorri Helgason og frá Edmonton koma Cayley Thomas, Braden Gates og  Kristofor Ellestad auk Paul Cournoyer og Stephanie Blais úr hljómsveitinni Post Script.

Safnanótt

Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 6. febrúar en þá opna fjörtíu söfn á öllu höfuðborgarsvæðinu dyr sínar og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá. Íbúar og gestir borgarinnar á öllum aldri geta notið yfir 150 viðburða af öllum stærðum og gerðum fram undir miðnætti sér að kostnaðarlausu. Sérstakur Safnanæturstrætó gengur á milli safnanna og auðveldar gestum að heimsækja söfnin á Safnanótt þeim að kostnaðarlausu. Einnig er hægt að taka þátt í Safnanæturleiknum en heppnir gestir geta m.a. unnið ferð á safn í  London í Bretlandi, frönskunámskeið, árskort á söfn og fleira. Leiðarkerfi Safnanæturstrætó er á vefnum vetrarhatid.is og í dagskrárblaði Vetrarhátíðar sem fylgdi með síðasta tölublaði Fréttatímans.

Heimsdagur barna

Heimsdagur barna verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 7. febrúar í Menningarhúsum Borgarbókasafnsins í Sólheimum, Gerðubergi, Kringlunni og Spönginni. Á Heimsdeginum býðst börnum, unglingum og fjölskyldum þeirra að kynnast öðrum menningarheimum með því að taka þátt í fjölbreyttum listasmiðjum og njóta margs konar skemmtunar. Dagskrá Heimsdagsins verður birt á sjö tungumálum auk íslensku og eru allir velkomnir.

Sundlauganótt

Sundlauganótt verður haldin laugardagskvöldið 7. febrúar en frítt verður í sund frá klukkan átta til miðnættis í völdum sundlaugum í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Í boði verður fjölbreytt dagskrá og hressileg atriði. Einnig er hægt að taka þátt í Sundlaugarnæturleiknum sem haldin er í fyrsta skiptið í ár en heppnir gestir geta m.a. unnið flothettur, sundnámskeið, árskort í sund og fleira.

Snjófögnuður

Snjófögnuður verður á Arnarhóli á opnunarkvöldi hátíðarinnar 5. febrúar þegar færustu snjóbrettamenn landsins troða snjóinn á hólnum í háan pall. Þeir sýna listir sínar eins og þeim einum er lagið undir taktföstum skífuþeytingi plötusnúða, áður en almenningi gefst tækifæri á að spreyta sig. Við fögnum snjó og birtu í Bláfjöllum sunnudaginn 8. febrúar á lokadegi Vetrarhátíðar þar sem íbúum höfuðborgarsvæðisins verður boðið í fjallið á tónleika og aðra skemmtilega viðburðadagskrá. Frítt verður fyrir börn og unglinga.

Sjá nánar dagskrá á www.vetrarhatid.is.