Á dögunum komu nemendur úr leikskólanum Sæborg og gáfu Vesturgarði gjöf. Þetta er mikið listaverk sem kemur til með að lífga uppá vinnustaðinn.
Þemaverkefni var unnið á Brúarenda vorið 2015 og var það í samstarfi við Listasafn Einars Jónssonar sem var liður í Barnamenningarhátíð í Reykjavík í apríl 2015.
Þemavinnan tengdist höggmynd Einars „Dögun“, sem er stytta af nátttrölli og er hún innblásin af þjóðsögunni „Nátttröllið á glugganum“. Listaverkið var sýnt á listasafninu á hátíðinni.
Starfsfólk Vesturgarðs þakkar Sæborg kærlega fyrir sig, en það var Sigþrúður Erla framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar sem tók við gjöfinni.